Söfnum kröftum - breytum vandamálum í verkefni PDF Prenta Rafpóstur
fimmtudagur, 03 september 2009

Söfnum kröftum - breytum vandamálum í verkefni

Líf og sál býður upp á fjögurra vikna námskeið þar sem fjallað verður um:
- Að efla sjálfstraustið
- Árangursríkar leiðir í samskiptum
- Jákvæðni og uppbyggileg viðhorf
- Að setja sér markmið og vinna að þeim
- Viðbrögð við áföllum og breytingum
- Að gefa daglega lífinu jákvætt innihald

Markmið með námskeiðinu er að leggja þátttakendum lið við að glíma á jákvæðan hátt við erfiðar aðstæður. Fjallað verður um viðbrögð við áföllum og breytingum, árangursríkar leiðir til að byggja upp jákvæða sjálfsmynd og mikilvægi jákvæðra viðhorfa til viðfangsefna tilverunnar. Þátttakendur verða aðstoðaðir við að setja sér markmið, auka virkni sína og  gefa daglega lífinu jákvætt innihald.

Takmarkaður þátttakendafjöldi er á námskeiðinu, veittur verður persónulegur stuðningur og jákvætt andrúmsloft.
Námskeiðið er í allt 6 skipti, tveir tímar í senn. Dagsetning næsta námskeiðs verður ákveðin síðar.


"Smelltu hér ef þú vilt skrá þig á biðlista fyrir næsta námskeið"

Leiðbeinendur eru sálfræðingar Lífs og sálar:
Þórkatla Aðalsteinsdóttir
Einar Gylfi Jónsson
Áslaug Kristinsdóttir
Rakel Davíðsdóttir

Nánari upplýsingar í síma 511-5508 og Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það .
Við bendum þér á leiðina og styðjum þig við að feta hana.

 
© Líf og sál sálfræðistofa ehf | Sími: 511 5508 | Fiskislóð 75, 101 Reykjavík, ÍSLAND
Hönnun: webit.is