Starfsmannstjórnun PDF Prenta Rafpóstur

Liðsinni í starfsmannastjórnun

Í daglegu amstri hafa stjórnendur oft ekki tíma til að sinna ýmsum mikilvægum þáttum starfsmannastjórnunar:

Hefur kannski lengi staðið til að ....

  • koma af stað starfsmannasamtölum?
  • efla liðsandann í starfshópnum?
  • gera fræðslu- og starfsþjálfunaráætlun?
  • taka á endurteknum árekstrum milli tiltekinna starfsmanna?
  • fara yfir starfslýsingarnar?
  • þróa starfsmannastefnu?


Líf og sál býður vinnustöðum upp á margvíslegt liðsinni í starfsmannastjórnun:


Greining

Skilgreinum, skoðum og könnum starfsumhverfi starfsmanna og stjórnenda, skoðum samskipti, samskiptaleiðir, hópamyndanir og tengsl við viðskiptavini. Athugum streitu, álag, fjarvistir, veikindi og mönnun. Förum yfir starfslýsingar og skipurit. Skoðum þjálfun og endurmenntun og könnum þarfir á því sviði. Gerum starfsánægjukönnun og athugum skráningu upplýsinga um starfsmenn. Ræðum við starfsmenn, stjórnendur og sérfræðinga.


Stefnumótun

Aðstoðum við gerð almennrar starfsmannastefnu eftir eðli vinnustaðar.


Fræðsla og starfsþróun

Aðstoðum við greiningu á þörf fyrir fræðslu og skipulag starfsþróunar í tengslum við starfsmannasamtöl og val á námskeiðum og annarri fræðslu.


Starfsgreining

Gerum starfsgreiningu ef þarf að útbúa starfslýsingar eða endurskoða frá grunni.


Starfslýsingar

Útbúum starfslýsingar með starfsgreiningu. Tökum viðtöl til að útbúa starfslýsingar.


Starfsmannasamtöl

Skipuleggjum starfsmannasamtöl, útbúum eyðublöð og þjálfum stjórnendur.


Erfið starfsmannamál

Aðstoðum vegna agamála, eineltis, áreitni og annarra starfsmannamála sem geta farið úrskeiðis. Greinum vanda, veitum ráðgjöf til stjórnenda og stuðning við starfsmenn.


Öryggi og heilsa

Athugum heilsumál innan fyrirtækisins og gerum úttekt á sál- félagslegum álags- og áhættuþáttum á vinnustað.
 
© Líf og sál sálfræðistofa ehf | Sími: 511 5508 | Fiskislóð 75, 101 Reykjavík, ÍSLAND
Hönnun: webit.is