| Starfsmannastuðningur |
|
|
|
|
Líðan starfsmanna hefur áhrif á frammistöðu þeirra og samskipti við vinnufélaga. Vanlíðan eða persónulegir erfiðleikar starfsmanns geta því verið bæði tímafrekir og kostnaðarsamir fyrir vinnustaðinn og jafnvel endað með brotthvarfi hæfs einstaklings úr starfi. Mikilvægt er að stjórnendur geti gripið inn með styðjandi hætti, án þess þó að taka að sér hlutverk meðferðaraðila. Líf og sál býður fyrirtækjum/stofnunum upp á samstarf sem felst í því að viðkomandi starfsmanni er vísað í viðtöl til sálfræðinga Lífs og sálar og þar leitað lausna á vanda viðkomandi. Til að slíkur stuðningur komi að sem mestu gagni er mikilvægt að stjórnandi og viðkomandi starfsmaður skilgreini sameiginlega um hvað málið snýst og úr hvaða þáttum í vinnuframlagi og/eða samskiptum þurfi að bæta. Lögð er áhersla á trúnað við starfsmanninn og upplýsingar til yfirmanns eru veittar í nánu samráði við viðkomandi starfsmann. |


