| Starfsemi |
|
|
|
StarfsemiÞEL - sálfræðiþjónusta ehf var stofnuð í apríl 2000 af sálfræðingunum Einari Gylfa Jónssyni og Þórkötlu Aðalsteinsdóttur. Árið 2004 flutti Þel í Pósthússtræti 13. Samtímis því var nafninu breytt í Líf og sál sálfræðistofa ehf. 1. nóvember 2008 flutti fyrirtækið sig enn um set og er nú með starfsemi sína að Fiskislóð 75. Líf og sál sinnir fræðslu og ráðgjöf fyrir vinnustaði, félagasamtök, skóla og almenning. Einnig sinnir Líf og sál meðferð fyrir pör, einstaklinga og fjölskyldur. FræðslaFræðsla Lífs og sálar er einkum á þrem sviðum: Samskipti á vinnustað og vellíðan í starfi; uppeldismál og þroski barna og unglinga; og síðan sameinast þetta tvennt í fræðslustarfi Lífs og sálar fyrir íþróttahreyfinguna: Á því sviði sinnir Líf og sál annars vegar ráðgjöf og fræðslu varðandi líðan afreksíþróttafólks og hins vegar varðandi uppeldishlutverk íþróttafélaga.RáðgjöfRáðgjafarþjónusta Líf og sál sálfræðistofu fyrir vinnustaði þjónar bæði starfshópum og einstaklingum. Ýmist er um tímabunda ráðgjöf að ræða, vegna aðsteðjandi vandamála/viðfangsefna, eða ráðgjöf sem spannar yfir lengri tíma; sem hluti af starfsþjálfun einstaklinga/starfshópa.MeðferðLíf og sál sinnir einstaklingsmeðferð fyrir skjólstæðinga frá unglingsaldri, uppeldisráðgjöf fyrir foreldra barna frá forskólaaldri, parameðferð og í vissum tilvikum býður Líf og sál skjólstæðingum með sameiginleg vandamál upp á hópstuðning.Rannsóknir og kannanirSkv. lögum nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum (sem voru endurskoðuð 2003) og reglugerð nr. 1000/2004 um aðgerðir gegn einelti á vinnustað, er stjórnendum á vinnustöðum lögð rík skylda á herðar varðandi að meta sálfélagslega áhættuþætti á vinnustaðnum og bregðast við aðstæðum sem kunna að valda vanlíðan hjá einstökum starfsmönnum. Líf og sál tekur að sér bæði vinnustaðagreiningar og rannsóknir á einstökum þáttum er lúta að samskiptum og vellíðan á vinnustað. Þessi vinna getur náð til almennrar úttektar á sálfélagslegum áhættuþáttum ásamt tillögum til úrbóta eða til rannsóknar á afmörkuðum vandamálum (t.d. eineltismálum) sem talin eru kalla á aðkomu fagaðila.
|


