Samstarfsaðilar PDF Prenta Rafpóstur
Líf og sál hefur gert gagnkvæma samstarfssamninga við ýmsa aðila á sviði vinnuverndar og meðferðar. Þetta felur í sér viljayfirlýsingu af beggja hálfu um að sinna beiðnum um samstarf eða aðstoð í einstökum málum. Með þessum hætti geta báðir aðilar eflt þjónustu sína og aukið gæði hennar.


Sálfræðingar/ráðgjafar

Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur hefur sinnt meðferð, ráðgjöf, starfsmannastuðningi, fræðslu og áfallahjálp á vegum Lífs og sálar undanfarin ár.

Jóhann Thoroddsen sálfræðingur hefur sinnt áfallahjálp, fræðslu og starfsmannastuðningi á vegum Lífs og sálar undanfarin ár.

Andrés Ragnarsson sálfræðingur sinnir í ásamt Einari Gylfa “Karlar til ábyrgðar”, sem er meðferðartilboð á vegum Félagsmálaráðuneytisins fyrir karla sem beitt hafa heimilisofbeldi.

Ragnheiður Sigurjónsdóttir fjölskylduráðgjafi sinnir meðferðar- og ráðgjafarvinnu á vegum Lífs og sálar.

Fyrirtæki

Heilsuverndarstöðin (áður InPro) og Líf og sál hafa gert með sér samning um að L&S sinni sálfræðiráðgjöf til starfsmanna fyrirtækja sem gert hafa "Velferðarþjónustu-samning" við Heilsuverndarstöðina.

Tryggingamiðstöðin og Líf og sál hafa gert með sér samning um að starfsmenn Lífs og sálar veiti viðskiptavinum TM sem á þurfa að halda áfallahjálp.

Lögmenn við Austurvöll er lögfræðistofa sem sinnir fjölþættri lögfræðiþjónustu. Vegna nábýlis hefur verið ýmiskonar samstarf sem leitt hefur til hagræðingar, auk þess sem fyrirtækin hafa veitt hvort öðru gagnkvæma faglega ráðgjöf.

 
© Líf og sál sálfræðistofa ehf | Sími: 511 5508 | Fiskislóð 75, 101 Reykjavík, ÍSLAND
Hönnun: webit.is