Meðferð og ráðgjöf við einstaklinga - sálfræðingur PDF Prenta Rafpóstur

 Sálfræðingar Lífs og sálar hafa langa reynslu á sviði meðferðar og ráðgjafar. Þessi reynsla nýtist okkur vel í þjónustu við vinnustaði og starfshópa, en einnig geta einstaklingar leitað til okkar á eigin vegum.

Öllum sem til okkar leita er boðið upp á greiningarviðtal þar sem við:
-  öflum upplýsinga
-  metum vandann
-  metum hvaða aðstoð við getum boðið þér

Við leitumst við að bjóða greiningarviðtal eins fljótt og hægt er.

Með þessum hætti styttum við biðina eftir þjónustu okkar og nýtum sem best þau úrræði sem við höfum upp á að bjóða.

Hér fer á eftir upptalning á ýmsum þeim sviðum meðferðar og ráðgjafar sem við höfum sinnt í gegnum árin:

  • Meðferðar- og stuðningsviðtöl við fullorðna
  • Áfallahjálp
  • Að glíma við kvíða
  • Að hafa stjórn á streitu
  • Þunglyndi
  • Meðvirkni
  • Uppeldisráðgjöf vegna barna og unglinga
  • Vímunefnavandi; stuðningur við neytendur og aðstandendur
  • Heimilisofbeldi
  • Reiðistjórnun
 
© Líf og sál sálfræðistofa ehf | Sími: 511 5508 | Fiskislóð 75, 101 Reykjavík, ÍSLAND
Hönnun: webit.is