Hannes Björnsson sálfræðingur PDF Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 22 janúar 2012

Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það  

Hannes Björnsson er  er fæddur á Hólmavík árið 1959. Foreldrar hans eru Óli Björn Hannesson augnlæknir frá Hnífsdal og Svanlaug Alda Árnadóttir geðhjúkrunarfræðingur frá Gautshamri í Steingrímsfirði. Hannes er giftur Elvu Björgu Einarsdóttur, mannfræðingi og eiga þau þrjár dætur.

Námsferill:
Landspróf frá Gagnfræðaskóla Garðahrepps 1976
Stúdentspróf frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1982
Embættispróf í guðfræði frá Háskóla íslands 1991
BA-próf í sálfræði frá Háskóla Íslands 2007
MA-próf í guðfræði frá Háskóla Íslands 2007
Cand.psych próf (vinnusálfræði og klínisk sálfræði) frá Háskóla Íslands 2009
Þá hefur Hannes setið fjölda námskeiða um áfallahjálp, sálrænan stuðning og handleiðslu.

Starfsferill:
Sveitastörf og byggingarvinna á sumrin til 1976
Verkamannastörf við skipasmíðastöðina Stálvík 1976-77
Sumarstörf hjá Ístak 1978-81
Gæslumaður við Kleppsspítala 1982-84
Háseti á mb Árntý VE 1984
Næturvarsla samhliða námi 1985-88
Sóknarprestur í Patreksfjarðarprestakalli 1992-2001
Kennsla og tölvuvinnsla Patreksfirði 1992-94
Sóknarprestur Íslendinga í Noregi 2001-04
Stundakennari við sálfræðideild Háskóla Íslands frá 2006
Geðgreiningar vegna rannsóknar SÁÁ og ÍE á erfðum fíknsjúkdóma 2007-09
Sálfræðingur á Miðstöð Sálfræðinga 2010-11
Sálfræðingur hjá Líf og Sál frá 2012

Hannes hefur auk kennslu við sálfræðideild Háskóla Íslands flutt fyrirlestra á sviði sögu sálfræðinnar við ýmsar aðrar deildir Háskóla íslands og erlendis, m.a. í Oxford.

Ritstörf:
Samþykkt               Nordic Psychology, (m. J. Pind) Psychology at the University of Iceland.
2011                      Sálfræðiritið, Sálfræði við Háskóla Íslands 100 ára.
2009                      Andvari, Sálfræði Hannesar Árnasonar prestaskólakennara.
2007                      Kirkjuritið, kynning á Dialogcenteret.
2003                      Kirkjuritið, kynning á íslensku söfnuðunum erlendis.
2001 - 2004          Kakali, rit Íslendinga í Noregi, ýmsar greinar og ritstjórn.
1998 - 2000          Vestrið, héraðsfréttablað, ýmsar greinar og ritstjórn.
1989                      Orðið, rit félags guðfræðinema, Paul Tillich.
1988                      Orðið, rit félags guðfræðinema, viðtal við sr. Jón Bjarman, sjúkrahúsprest.

Trúnaðarstörf:
Margvísleg trúnaðarstörf á sviði kirkjunnar, svo sem nefndarseta og formennska í nefndum og deildarfélögum. Settur prófastur 2010-11. Sömuleiðis yfirgripsmikil félagsstörf utan kirkju, helst  á sviði nærumhverfis, svo sem íbúasamtökum og nefndum tengdum skóla.

 
© Líf og sál sálfræðistofa ehf | Sími: 511 5508 | Fiskislóð 75, 101 Reykjavík, ÍSLAND
Hönnun: webit.is