Áslaug komin aftur til starfa
þriðjudagur, 18 maí 2010
Í dag hefur Áslaug Kristinsdóttir aftur störf eftir barneignaleyfi. Vinnufélagar bjóða hana hjartanlega velkomna.
 
Líf og sál 10 ára
þriðjudagur, 06 apríl 2010

Í apríl 2000 stofnuðu þau Einar Gylfi og Þórkatla fyrirtækið ÞEL sálfræðiþjónustu ehf. Árið 2004 breyttu þau nafninu í Líf og sál sálfræðistofa ehf.  Auk hefðbundinnar sálfræðimeðferðar hefur fyrirtækið lagt áherslu á þjónustu við starfshópa og vinnustaði, einkum í formi fræðslu og ráðgjafar. Í dag starfa 4 sálfræðingar hjá Lífi og sál, auk ritara.

 
Rakel komin aftur til starfa
miðvikudagur, 17 mars 2010
Í dag kemur Rakel Davíðsdóttir sálfræðingur aftur til starfa eftir barneignaleyfi og bjóðum við hana hjartanlega velkomna.
 
Líf og sál flytur starfsemi sína
föstudagur, 17 október 2008

Mánudaginn 3. nóvember næstkomandi mun Líf og sál flytja starfsemi sína úr Pósthússtræti 13 á Fiskislóð 75. Fiskislóðin er ein af nýju götunum úti á Granda og liggur samhliða Grandagarði. Nýjar verslanir Krónunnar og Bónuss standa við götuna. Leið 14 stoppar við Grandakaffi og þaðan er stutt ganga að Fiskislóð 75.

 
© Líf og sál sálfræðistofa ehf | Sími: 511 5508 | Fiskislóð 75, 101 Reykjavík, ÍSLAND
Hönnun: webit.is