Einar Gylfi Jónsson, sálfræðingur PDF Prenta Rafpóstur

Einar Gylfi Jónsson 

Sími: 511-5508
einargylfi(at)lifogsal.is

Einar Gylfi Jónsson er fæddur í Vestmannaeyjum 1950, sonur hjónanna Jóns Kjartanssonar, fyrrv. formanns Verkalýðsfélags Vestmannaeyja og Sigríðar Angantýsdóttur, verkakonu (d. 1983). Einar Gylfi er kvæntur Ingibjörgu Péturdóttur iðjuþjálfa og eiga þau tvö börn. Fyrir á Einar Gylfi fjögur börn. Afabörnin eru orðin sjö.

Námsferill:
Landspróf frá Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja 1965
Kennarapróf frá Kennaraskóla Íslands 1971 og stúdentspróf
frá sama skóla 1972.
BA-próf í sálarfræði frá Háskóla Íslands 1975
Cand. psych. próf frá Háskólanum í Árósum 1979.

Auk þess hefur hann sótt fjölda námskeiða á sviði sálfræðimeðferðar, áfengismeðferðar, forvarna, ráðgjafar og handleiðslu.

Starfsferill:
Sumarvinna í frystihúsi og sjómennska 1959-1971
Vegavinna sumarið 1972
Aðstoðarmaður við hjúkrun á Kleppsspítala sumrin 1973-75
Kennsla við Ármúlaskóla veturinn 1973-74
Sálfræðingur við áfengisskor geðdeildar Landsspítalans 1979-82
Ráðgefandi sálfræðingur við Unglingaathvarf Félagsmálastofnunar Reykjavíkur 1980-87
Sálfræðingur við Félagsmálastofnun Kópavogs 1982-84
Ráðgjöf og fræðsla fyrir starfsfólk félagsmiðstöðva í Reykjavík 1983-87
Sálfræðingur við Unglingadeild Félagsmálastofnunar Reykjavíkur 1985-87
Forstjóri Unglingaheimilis ríkisins 1988-93
Rekstur eigin sálfræðistofu 1993-2000
Ráðgefandi sálfræðingur fyrir CAAC (áfengisráðgjafardeild) á herstöð Bandaríska flotans á Miðnesheiði 1993-1996
Ráðgefandi sálfræðingur fyrir meistarflokk karla ÍBV í knattspyrnu 1995-98
Deildarstjóri Forvarnadeildar SÁÁ 1996-2000
Karlar til ábyrgðar - meðferðarúrræði vegna ofbeldis karla gegn mökum 1997-2002 og aftur frá 2006
Ráðgefandi sálfræðingur fyrir meistarflokk karla KR í knattspyrnu 1999-2001
Sálfræðingur og meðeigandi hjá Þeli - sálfræðiþjónustu ehf (síðar Líf og sál) frá 2000.

Einar Gylfi hefur haldið fjölda fyrirlestra og námskeiða víðsvegar um land um uppeldismál, forvarnir, íþróttasálfræði og samskipti á vinnustöðum.

Ritstörf og önnur fræðistörf:
Krot á vegg - könnun á frístundum og áhugamálum unglinga - ásamt Ómari Kristmundssyni og Finnboga Gunnlaugssyni - ÍTR 1986
Unglingar í vímuefnavanda - könnun á fjölda, aðstæðum og neyslumunstri - Unglingadeild Félagsmálast. Reykjavíkur, 1987
Unglingar og vímuefni - kafli í Hörður Þorgilsson og Jakob Smári: - Íslenska sálfræðibókin - Mál og menning, Reykjavík, 1993
"Áhættuþættir varðandi neyslu unglinga á áfengi og öðrum vímuefnum - kafli í - Fíkniefni og forvarnir - Fræðslumiðstöð í fíknivörnum, Reykjavík 2001

Trúnaðarstörf:
Fræðslunefnd Sálfræðingafélags Íslands 1980-1982
Undirbúningsnefnd Ráðstefnu norrænna sálfræðinga 1986-87
Ritstjórn Fréttabréfs SÍ 1987-88
Fulltrúaráð Barnaheilla 1992-96
Formaður Barnaheilla 1996-2000
Vinnuhópur um aðgerðir vegna ólöglegs innflutnings fíkniefna 1999
Heilbrigðisráð ÍSÍ 2001-2009
Í stjórn Parkinsonsamtakanna 2003-2006

 
© Líf og sál sálfræðistofa ehf | Sími: 511 5508 | Fiskislóð 75, 101 Reykjavík, ÍSLAND
Hönnun: webit.is