| Áhættumat og ráðgjöf |
|
|
|
Sálfélagslegir áhættuþættir
Þegar lögin um öryggi og hollustu á vinnustöðum voru endurskoðuð 2004 var ein helsta nýungin að sálfélagslegra áhættuþátta var sérstaklega getið. Með sálfélagslegum áhættuþáttum er átt við allt það í vinnuaðstæðum starfsfólks sem leitt getur til vanlíðunar. Sem dæmi um slíkt er eftirfarandi:
Skv. Vinnuverndarlögunum ber atvinnurekendum að :
Líf og sál hefur hlotið viðurkenningu Vinnueftirlitsins sem þjónustaaðili á sviði vinnuverndar, með sérstöku tilliti til sálfélagslegra áhættuþátta og býður fram þjónustu sem tekur til allra þessara þátta. Þjónusta Lífs og sálarGerð áhættumats sem tekur til sálfélagslegra þáttaVið leggjum spurningalista fyrir starfsmenn þar sem spurt er um ýmsa þætti sem áhrif hafa á líðan í starfi, vinnum úr svörunum og komum með tillögur um úrbætur ef með þarf.Ráðgjöf og aðstoð við gerð viðbragðsáætlana og verklagsreglnaVið erum ráðgefandi við mótun stefnu í eineltismálum og við gerð verklagsreglna um viðbrögð við einelti og annarri áreitni á vinnustað.Við erum einnig ráðgefandi varðandi viðbrögð við áföllum sem upp kunna að koma. Fræðsla fyrir stjórnendur og starfsfólk Við bjóðum upp á fjölbreytta fræðslu þar sem bæði er fjallað um tiltekin vandamál sem upp geta komið á vinnustað og um leiðir til að auka vellíðan og jákvæð samskipti á vinnustaðnum.
StarfsmannastuðningurVið veitum stuðning einstökum starfsmönnum og starfshópum sem orðið hafa fyrir áföllum eða ganga í gegnum erfiðleika sem há þeim í starfi.Aðstoð við úrvinnslu erfiðra málaVið veitum beina aðstoð við rannsókn, mat og úrvinnslu erfiðra mála á borð við einelti, árekstra í starfshópum og uppsagnir.
|


